Klukkan
Könnun
Hverja af okkur þekkiru? ;*
ósk
1 atkvæði

aniku
7 atkvæði

sissú
19 atkvæði

allar
8 atkvæði

engar, rakst bara á síðuna á netinu :D
7 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 42
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
21.03.2009 17:06:11 / bootilisius

ástand

Hmm..

Jæja, þá er Músti kominn með nýtt nafn. Nafn hans er Draumabirtu fore the destinye Vasksson .. Kallaður Straumur. Það gengur mjög vel með hann. Sem ég er rosalega ánægð með, hann er mjög duglegur að læra .. strax farinn að ganga með í taum, svaka duglegur. Hann verður 3 mánaða núna 1 Apríl. Orðinn svo stór "litli" garpurinn minn.
Hann vó 1522 Grömm og 3 kíló. Það er bara heví slatti miðað við aldur hans, 3 mánaða.
Bróðir hans, hann Ólíver er rétt um 1000 grömm og rúmlega 1 kíló. Hehe, þetta er alveg ótrúlegt. En það styttist í það að strákurinn minn geti orðið pabbi.

En svo er það hún Þoka. Ahh, hún er farin að fara svakalega úr hárum, orðin mjög svo grönn aftur =/. Er á íslensku fóðri, borðar vel af því en er þó eitthvað sem hún fýlar ekki í því. Annars gengur allt vel ! (",).
Einnig er hægt að skoða nýjar myndir af þeim =), albúmin ganga undir; Straumur nýtt <3 og Þoka nýtt <3.

Endilega skoðið :) , ef þið eigið kanínustelpu, sem er þá dvergur látið mig vita :)
Væri vel til í að skoða ;).

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 13:48:45 / bootilisius

ný dýr / minning..

Sæl. Þá er Stúart minn dáinn, og er hans sárt saknað!
Hér getið þið séð myndir af Stúart Frostfoldar og fjölskyldu hans; http://bootilisius.blogcentral.is/myndasafn/266731/ .
Þalía er einnig dáin og er hennar líka sárt saknað.
Dánarorsök þeirra eru þau að Þoka (hundurinn) drap þau á einhvern óviðeigandi hátt.
En hér er hægt að sjá myndir af Þalíu; http://bootilisius.blogcentral.is/myndasafn/263179/ .

Þoku er ekki hleypt inn í bílskúr lengur þar sem að ég vil fá að eiga mín nagdýr í friði.
En ekki er það hægt þegar Þoka er í kring. Veiðieðlið í henni er bara það mikið!
En þannig er mál í vexti að ég er að fá 2 kanínur á næstunni.
Eina Mini Lop og eina dverg. Dvergurinn heitir Músti en Mini Lop Ólíver.
Ég mun breyta nafninu á Mini Lop kanínunni en er ekki enn komin með nafn.
Músti átti víst að heita Múska þar sem haldið var að hann væri stelpa, en komst svo að því að hann er strákur eftir allt saman. Hér eru mynd af Músta og Ólíver.

                     Músti <-------> Ólíver.
Svo er ég í leit að kanínustelpu þar sem ég er að stofna kanínuræktun.
En til þess að byrja með verð ég með þessa stráka.
Ræktunin sem ég verð með heitir Frostfoldar og er ég búin að láta skrá hana á mig.
Svo er sp. hvort ég starti músaræktun, en þá aðeins ef kanínuræktunin gengur vel.
Annars mun það ekki ganga. En ég mun vera með Mini Lop kanínuræktun.
Svo er aldrei að vita nema Músti fari upp á einhverja gellu.
Hann er nú svo fallegur að lit að það skaðar ekki að láta hann upp á minst eina.
Fá fallega unga. Auðvitað hefðu fallegustu ungarnir komið undan Þalíu minni og var planað að láta hana og Ólíver eignast unga saman.
Annars er Músti Harlequin að lit en Ólíver Sooty Fawn.
Svo að ef einhver vill unga undan öðrum hvor þeirra þá bara láta mig vita.
Það er á planinu eins og ég sagði hér ofar á fá allavega eina Mini Lop stelpu til þess að byrja með eftir að ég fæ strákana.

Endilega látið mig vita hvernig ykkur lýst á framtíðar strákana mína..

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 20:02:52 / bootilisius

kanínuungarnir komnir með nöfn.

Já, allir ungarnir eru komnir með nöfn :)
Ungarnir heita;

Draumabirtu Birta Rur Vasksdóttir
Draumabirtu Kamilla Rut Vasksdóttir
Draumabirtu Snoppa Lind Vasksdóttir
Draumabirtu Múska Krútta Vasksdóttir

Svo bíð ég bara spent eftir að fá Músku mína, fæ hana um miðjan Feb =).

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 18:13:24 / bootilisius

16 Janúar.

Ég var vakin upp úr 6 leitið í morgun þar sem ég þarf nokkuð langann tíma til þess að gera mig til fyrir skólann sem ég er byrjuð í. En ég fór á fætur, læddi mig og alles stöff sem fólk gerir vanalega áður en það fer út úr húsi. Ég tók strætó (6) klukkan 07;10 frá Miðgarði og upp í Kringlu. Þar skipti ég svo yfir í tvistinn (2) og tók hann upp í Hamraborg og þaðan tók ég svo ásinn (1). Eða eins og mamma segir "eittuna" upp í skóla. Ég er semsagt byrjuð í Iðnskólanum Hafnafirði og fýla ég mig í botn þar.
Þetta er alveg æðislegur skóli. Fyrstu tímarnir mínir voru í gær. Og mætti ég svo aftur í dag í annað sinn. Strax er ég búin að kynnast fullt af fólki þarna.
En Aron sem er með mér í Ísl 192 og fl fögum skutlaði mér upp í Fjölsmiðju og hitti ég þar Anítu. Við Aníta löbbuðum svo upp í BettÍs og vorum sóttar þar.
Danni æði pæði. Gerir allt fyrir okkur. Hehe. En svo fórum við á rúntinn í smá tíma. Rúntuðum aftur og aftur niður Laugarveginn en fórum svo í kringluna og vorum þar í smá tíma. Svo eftir það fórum við heim til mín að kikja á Stúart, músina mína..
Aníta er að fara að fá hana. Meika hana ekki lengur svo að ég er að selja Anítu hana. En svo fórum við aftur á rúntinn að sækja Egil (kærasta Anítu) og erum núna bara heima hjá honum. Erum samt á leiðinni út á rúntinn, svo förum ég og Aníta til Guffa míns um 8 leitið =).

Well, ég hlakka alveg endanlega mikið til að fá þig í bæinn Sissú.
Elska þig meged ..(L)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 18:00:32 / bootilisius

bloggidíblogg

já...það er bara helvíti langt siðan ég bloggaði hér..

það hefur nú ekki mikið merkilegt gerst nema það að hún mamma mín átti afmæli 13 janúar..til hamingju með það elsku mamma mín(L)(L)

en í dag er föstudagur og það var stuttur skóli í morgun..eða bara til hálf 1..:D svo fór ég heim að éta og svo aðeins til birnu pabba og svo heim í tölluna...:D svo niður í banka og svo heim aftur og þá sofnaði ég smá :^) hehe :^) en svo fór ég bara í tölluna..

ég hef reyndar sterkan grun um að ein kisan mín sé ólétt :|

þannig að ef ykkur langar kannski í kettling þá er bara að láta mig vita en´ég veit  ekki hvort þetta verður :D
 
en það eru bara 2 vikur þangað til að ég kem í bæjinn :):o hlakka feitast til þá ætlum við að hittast og gera fullt skemmtilegt

ekkert meira að frétta af mér þannig ég ætla að láta þetta gott í bili skrifa KANNSKI meitra á morgun :)



kveðja Sissú (L)(L)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 14:18:23 / bootilisius

vinna.

Jæja, ég er hér stödd í vinnuni með Þalíu mína.
Síðasti dagurinn minn í vinnuni svo er ég farin í skóla.
Ég er semsagt búin að fá aðgang inn í Iðnskóla Hafnafjarðar.
Get varla beðið. En er samt frekar leið yfir því að þurfa að hætta hér.
Í Fjölsmiðjunni. Sissú, þú veist nú ástæðuna fyrir því.
Alveg frábær vinna..

Eins og núna, ég sit hér og hlæ mig máttlausa.
Ef þið horfið á www.youtube.com inn á Funny Humar Tetris Japanese game show ..
það er bara fyndið!

Endilega horfið og hlægið! . hehe..
En Sissú það styttist í þig gæskan! Can't wait!


Oooog núna gæti ég ææælt ! .
Það er dúddi hérna named Jónki ..
Hann lætur braka alveg hrillilega í hálsinum á sér, fock ! . þetta var ógeðslegt.
En já..
Ég er hérna með Þalíu, Þalía er öll að koma til .. og Addi minn elskulegi sem er að vinna hér .. 25 ára, sagði mér þær fréttir að Þalía er ekki lömuð heldur hefur hún fengið stroke.
Semsagt einskonar "hjartaáfall". Og er enn að koma sér yfir það.
Annars er dúllan mín fín. Hún lyggir núna í kassa hér í vinnuni minni með mat, kodda og vatn. En ég ætla að fara að koma mér.. Það er víst komin sígó tæææm á þetta man !

Heyri í ykkur fólk, Sissú hlakka til að sjá þig =).

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 14:37:36 / bootilisius

Halló.

Jæja, þá styttist í nýja kanínuungann. Allir eru búnir að opna augun nema mín.
Hehe, alveg krúttuðust. En ungarnir eru rúmlega 1 og hálfs vikna gamlir.
Hér er svo mynd af krúttinu mínu sem ég fékk senda í gær:
Þetta er bara svo sætt.
En allavega!
Ég ætla að koma með fréttir af mér.

Ég er stödd í vinnuni eins og er, aðeins hálftími eftir af henni eða svo.
Ég er nú farin að kveðja Fjölsmiðjuna og líta hinu megin við blaðið.
Mamma sótti semsagt um fyrir mig í Iðnskóla Hafnafj. og fæ ég að byrja þar sem fyrst.
Proud. Proud. Svo styttist í Sissú mína =).
Hlakka svo til að þú komir.
Þegar vinnuni lýkur fer ég beint niður á Laugarveg til sálfræðings og svo til Lindu minnar og svo heim. Svo ætla ég að reyna að komast í banka og í kringluna að kaupa mér plaggöt af Tokio Hotel.

Múhaha, im in love !!!
with Bill !! <3.

En allavega ég ætla að koma mér. Það er sígó tæm svo eru allir horfnir heim!
Blogga meir seinna, og Sissú.. farðu að hringja í mig ! . ;; 8983010.

Btw, vil láta alla vita að Þalíu gengur allt í haginn =).

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 22:25:40 / bootilisius

já já :D

hallóó :D í dag er svo mikið sem 7 janúar 2009 :D og sigþór  á afmæli:D

hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann sigþór,
hann á afmæli í dag.

og svo framveigis :D

dagurinn var svo sem ekkert spes þannig séð..bara það venjulega..fór í skólann kl 8 stæ-ísl-frímó-eðl-saga-frímó-leikfimi-enska .. já þeta var sem sagt skólinn hann var bara til hálf eitt í dag:D þá fórum við ásta heim íktum á eina mynd pússluðum svolítið í stóra pússlinu og fórum svo útí sjoppu og keyptum í kaffimatinn og kvöldmatinn það var pizza :D jebb... fórum heim átum og horfðum á aðra mynd haha við erum að reyna að horfa á allar myndirnar sem ég á..þær eru nú ekki margar..svo fórum við í tölluna og svo fór ásta heim að éta og ég að búa til pizzuna mína :D hún varð svona helvíti girnileg bara :D:):haha:....svo kom ásta aftur og við horfðum á bráðavaktina og svo lokaþáttin af american next top model og mckey vann:D þótt að ég hafi ekki haldið með henni:| það er ekki allt eins og það vill fara..nei nei...en þá var klukkan orðin 10 mín í 10 og þá fór ásta heim og ég fór bara í tölluna og sit hér enn á rassgatinu og bíð eftir að ekker skemmtilegur komi á msn :D

Commenta <3 <3

Sissú;**


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 22:15:40 / bootilisius

Just a normal day :)

Ég vil byjrja á að segja...ELSKU ÞALÍA MÍN LÁTTU ÞÉR BATNA ÉG VIL FÁ AÐ SJÁ ÞIG ALLAVEA EINU SINNI ENN (L)(L):haha:

En allavega var alleg slatti að gerast í dag..það er síðasti dagur jólanna..mér finst eins og þau hafi ekki komið þetta ár leið bara alltof hratt ekkernvegin ;);)

Ég vaknaði klukkan hálf 8 en drullaðist ekki frammúr fyrr en 10 mín í 8..þá dreyf ég mig frammúr klæddi mig, burstaði, greiddi hárið og svo skutlaði mammz mér í skólann..:) við byrjuðum á stærðsfæði:| vá hvað stærðfræði er flókin stundum.. 8| en við gerðum ekkert svoleiðis erfitt í morgun...svo kom begga það var spjalltími um jón sigurðsson (jeiiii) svo komu frímó, 2 tímar hjá rönnsu pönnsu :haha: og svo frímó aftur og svo gústi og svo hálfur ensku tími og svo tókum við niður jólaskrautið og stofan var nú hálftómleg eftir það :( svo kom matur og svo var handavinna hjá sigríði..ég byjrði á nýju verkefni og svo fórum við ásta beipí heim og fórum að horfa á mynd..en því miður sofnaði ég :^) það var nú svosem ókey :) svo dudduðum við okkur ekkað smá og horfðum svo á aðra mynd en við náðum ekki að klára hana því ásta þurfti að fara heim í mat :| en hún kom aftur af því að það var ekki féló...ég veit ekki af hverju... og við kláruðum að horfa á myndina og horfðum svo á top dísæn :) svo fór ásta heim og hér sit ég að blogga á þessa fínu síðu :)

Commenta takk:)               24 dagar þangað til að ég kem stelpur mínar


Sissú <3

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 22:02:57 / bootilisius

Elsku Þalía mín.

Jæja þetta er mitt fyrsta blogg.
En hún Þalía kanínan mín verður 4 mánaða þann 26. Janúar,
og er hún lömuð því miður litla daman.
Þannig er mál í vexti að hún getur ekki labbað sjálf.
Þannig séð veltir hún sér í hringi ef hún er sjálf á golfinu.
Eða hún er orðin aðeins duglegri í dag, hún er farin að taka nokkur skref.
Farin að borða sjálf og drekka.

Þalía mín varð fyrir einhverjum átökum sem ekki áttu að eiga sér stað í kring um hana.
Hvort sem það hafi verið raketur eða ekki, þá varð hún hrædd og fékk einskonar hræstu flog. Og lamaðist hún mjög eftir það.
Ég á að bíða í nokkra 4-5 daga og tékka hvort þetta lagist ekki, ef ekki á ég að mæta með hana upp á dýró og henni verður gefið sýklalyf.
Vonandi batnar henni, ég krosslegg fingur og tær
og vona svo sannarlega að allt gangi vel.

Elsku Þalía mín, vonandi batnar þér sem fyrst.
Ég hef vakið í alla nótt með henni, til þess að eiga góðasr stundir með henni ef þetta skyldi verða hennar síðasta nótt með mér.
En dýralæknirinn sagði nú samt að hún ætti ekkert að deyja á næstunni alavega.
Sem betur fer.

En hér er ein mynd af skvísunni minni..
Orðin svo lömuð greyjið.

takk takk, kv Anika Lind.

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 18:30:55 / bootilisius

Skólin byrjaður :(

Bloggidí blogg :D

Þetta er búin að vera "viðburðaríkur" dagur :)

ég er gjörsamlega ekki búin að gera neitt... :/ ég vaknaði og fór í skólann kl 8 og svo kom ég heim..fór 10 mín í tölluna og sofnaði svo vaknaði og talaði fullt við aniku í símann :D og fékk mér að éta á meðan :D svo fór ég í tölluna og hér sit ég enn :D Svo verður Unglinga-Sveitin Vestri í kvöld..það verður að fara þangað til að fá ekki skróp í kladdann :D

Yfir og út

Sissú <3


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 19:30:04 / BlogCentral

Fyrsta blogg..!!

Jæja við ætlum að reyna að endurvekja þessa blessuðu síðu..Ég heiti Sissú og á hiema á Patreksfirði sem er langt frá Reykjavík þess vegna fæ ég að hitta stelpurnar voðaæega sjaldan :'( en það er ógeðslega gaman þegar það gerist ;** sakna ykkar meira en allt <3<3

Kveðja Sissú (L)

» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 12944